|
|
Við á Eikinni byrjuðum þessa viku skemmtilegum danstímameð Elínu, við tókum marga skemmtilega dansa og getum ekki beðið eftir að sýna öðrum. Svo fórum við í hið vikulega skólasmstarf sem var gaman en á þriðjudaginn mótuðum við eldfjöll úr trölladegi í tilefni eldgosanna á Íslandi. Seinna ætlum við svo að mála eldfjöllin og búa til smá gos. Í dag fórum við í fyrsta göngutúrinn síðan um áramót, við gengum áleiðis upp á fjall, stoppuðum einhverstaðar og fengum okkur nesti. Við gengum svo til baka, fórum smá krókaleiðir og ævintýraferðir sem enduðu í Aldísarlundi. Þar fundum við lítinn leikvöll þar sem við lékum okkur áður en við fórum heim. Veður hefur svo sem verið ágætt þó að það mynni okkur ekkert á að sumardagurinn fyrsti er að ganga í garð. Við viljum líka biðja fóreldra að taka eitthvað af skítugum fötum hjá krökkunum og þvo þau.
Takk fyrir vikuna og eigiði góðan sumardag hinn fyrsta
Það var rosalega mikið um skemmtilega hluti í þessari viku, krakkarnir byrjuðu vikuna á nýju skólasamstarfi, til dæmis krakkarnir í rauða hópnum sem fengu heimsókn frá grunnskólanum gerðu litla teiknimynd með myndvarpa og glærum. Fyrsti danstíminn var í þessari viku og fóru allir til Elínar og skemmtu sér konunglega. Þau lærðu nokkra dansa og ætla að halda áfram að æfa sig komandi vikur. Á miðvikudaginn var óvæntur glaðningur í kaffinu, þar sem allir á leikskólanum fengu ljúffenga skúffuköku. Undanfarna daga höfum við verið að vinna með páskana í hópastarfinu, við höfum litað, klippt og límt páskaegg og páskaunga og síðast en ekki síst höfum við ferið að „putta prjóna“ páska unga, þeir eru núna tilbúnnir upp á deild svo endilega komið og skoðið þá. Enn og aftur vil ég minna foreldra á að koma með regnföt handa krökkunum þó það sé ekki rigning, allt er rennandi blautt úti og pollar og drulla út um allt.
Takk fyrir vikuna
Síðustu dagar hafa verið mjög fínir, við höfum leikið okkur mikið úti enda hefur veðrið skánað til muna fyrir utan síðustu tvo. Þá hefur verið rigning og slydda og mætti minna foreldra á að koma með pollaföt handa krökkunum, því að sumir urðu ansi blautir.
Skólasamstarfið hefur gengið vel og núna á mánudaginn var fjórða skiptið sem það hefur verið eftir áramót. Nú förum við að skipta yfir í önnur skemmtileg verkefni sem krakkarnir inna með fyrstu bekkingum. Einnig hefur verið gaman í hópastarfinu, þar sem að við höfum verið að vinna með litli, þ.e.a.s. blöndun lita og svo bara lita fallegar myndir. Síðasta mánudag var krökkunum á Eikinni boðið á dassýningu grunnsólanns, þar sem nokkrir bekkir sýndu dans í íþróttahöllinni, þetta var rosalega flott sýning og allir skemmtu sér vel.
Takk fyrir vikurnar
Þessi vika hefur verið mjög góð, gott veður mest alla dagana og úti renndu krakkarnir sér á rassinum niður brekkurnar eða léku sér í öðrum leikjum í snjónum. Á mánudaginn í hópastarfinu teiknuðum við sjálfsmynd af okkur hvernig við vorum á öskudaginn, margar flottar og skrautlegar myndir urðu til. Einnig var skólasamstarf þar sem þrír hópar við fórum í skólan að læra og leika okkur með skólakrökkunum í fyrsta bekk en einn hópurinn varð eftir á Krummakoti og fékk heimsókn frá fyrstubekkingunum . Á þriðjudaginn var tónlist hjá Maríu sem var mjög gaman. Síðustu vikur höfum við verið að vinna með ólympíuleikana en þar sem þeir eru búnir ávkáðum við að halda okkar eigin ólympíuleika í íþróttatíma. Skipt var í tvo lið, Ísland og Holland og við kepptum í hokkí, brettasvigi og í skíðagöngu, tveir saman á skíðum. Allir fengu svo verðlaunapening eftir góða frammistöðu á leikunum. Fimmtudagurinn var hinsvegar bara rólegur, við máluðum, límdum, klipptum og lituðum ásamt því að leika okkur úti.
Takk fyrir vikuna
Nú er að byrja fjögurra vikna þemavinna með umferðina. Í hópastarfi vinnum við fjögur verkefni og í nokkrum hvíldarstundum verða lesnar bækur um umferðina. Einnig munum við æfa okkur á umferðarreglum þegar gengið er í íþróttahús og þegar farið er í göngutúr.
Á þriðjudag var tónlist hjá Maríu. Á miðvikudag fórum við í íþróttahúsið. Á föstudag er grænn dagur og verður því lögð áhersla á græna liti. Hægt er þá til dæmis að koma í grænum fötum, lita á grænt blað eða fá græna málningu á andlitið.
Dygðarvinnan gengur mjög vel og eru börnin mikið að velta fyrir sér hver sé að sýna virðingu og hver ekki. Einnig heyrist ennþá talað um vinsemd og kurteisi, jafnvel í sömu setningum. Frábært hvað gengur vel og greinilegt að umræðan er einnig á heimilum.
Munum eftir að koma með taupokana aftur í leikskólann.
Takk fyrir vikuna og góða helgi.
Nú í þessari fyrstu viku árs byrjuðum við á því að vera inni sökum mikillar frosthörku, en mælirinn hér sýndi um 18 gráðu frost. Við förum ekki út ef frostið nær um 10 gráðum. Fyrsta daginn eftir jólafrí virtist því erfitt að þurfa að vera inni allan daginn og geta ekki fengið nægilega útrás. Á þriðjudag var tónlist og svo skoðuðum við nýjan staf (L, l) og hans hljóð og fórum svo í útiveru. Á miðvikudag fórum við í íþróttahúsið. Fínt væri því að fá öll íþróttaföt aftur í leikskólann.
Á fimmtudag vorum við inni vegna frosts. Lékum í frjálsum leik og máluðum. Andrea Björg varð 6 ára og af því tilefni lituðu allir mynd handa henni, og svo auðvitað var líka flaggað íslenska fánanum.
Í dag er dótadagur, sem virðist mjög vinsælt. Það var mjög mikið fjör og mjög skemmtilegt.
Takk fyrir vikuna og eigið góða helgi. Munum að sýna hvert öðru virðingu !
Ennþá vinnum við með stöðvavinnu og föndrum alls kyns jólaskraut. Það gengur mjög vel að vera með fjórar mismunandi stöðvar og svo eftir fjóra hópastarfsdaga eru allir búnir að gera fjóra mismunandi hluti. Börnin bæði sjá hvað hinir hafa gert og vita hvað þau eru búin með og því gengur hópastarfið mjög vel, enda duglegir og áhugasamir nemendur hér á ferð !
Á fimmtudögum, þegar krakkar úr 7.bekk koma að lesa, þá gengur mjög vel. Frábært samstarf og mjög gaman að fá þau hingað til að lesa, skemmtileg tilbreyting.
Á þriðjudaginn fór allur leikskólinn upp í Aldísarlund. Okkar deild fór á undan upp eftir, þar sem við skreyttum með luktunum sem við bjuggum til og einnig með friðarkertum. Séra Hannes kom með gítarinn sinn og við sungum saman og svo sagði hann okkur sögur inn á milli. Við áttum þarna saman góða stund í fallegu veðri.
Í söngstundunum syngjum við mikið af jólalögum. Börnin muna greinilega mjög mikið af lögunum frá því í fyrra, þannig að þetta gengur vel og höfum við notalega stund saman. Oft setjum við kertaljós í miðju hringsins sem við höfum stundum kallað vinaljós. Einnig lesum við á hverjum degi upp úr skemmtilegu jóladagatali og börnin hlusta hugfangin á.
Hópastarfið þessa viku er búið að vera eins og síðustu viku, stöðvavinna. Hún gengur vel og börnin eru orðin vön rútínunni og vita hvað þau gera næst eða hvað þau eiga eftir að gera. Á þriðjudag var tónlist hjá Maríu og á miðvikudag fórum við í íþróttahúsið.
Þessa viku kom inn smá prjónaáhugi hjá mörgum börnum á deildinni, þá var setið og puttaprjónað eins og á prjónaverksmiðju. Á föstudag var vasaljósadagur og virtist sem börn og starfsfólk hefðu gaman af þeirri uppákomu enda alveg frábær tími nú í desember til að leika með vasaljós.
Á mánudaginn héldum við upp á dag íslenskrar tungu. Við ræddum aðeins um daginn og um Jónas Hallgrímsson sem hafði fæðst þennan dag. Sumum fannst það nú ekkert merkilegt þar sem við þekkjum hann ekki neitt. Eftir hádegi fórum við á hátíðina í íþróttahúsinu. Horfðum á öll skemmtiatriðin því það gekk svo vel. Þegar við komum aftur í leikskólann í kaffitíma var mikið rætt um myndina sem unglingastigið gerði um djáknann á Myrká. Þá var mest rætt um manninn sem datt í ána og beinagrindina sem var klædd í föt. Mjög skemmtileg ferð sem gekk vel.
Á þriðjudaginn fórum við í tónlist hjá Maríu og svo skoðuðum við stafinn Í í og hans hljóð. Lituðum svo mynd af stafnum. Á miðvikudag var svo rosalega fallegt veður að þá var ákveðið að fara í göngutúr í staðinn fyrir að fara í íþróttahús. Tókum með okkur mjólkurkex og kakó. Ferðin gekk í fyrstu vel og svo tók aðeins á þegar gengið var upp í Aldísarlund og þar upp stíg sem liggur suður og upp. Þar stoppuðum við og fengum okkur nesti. Gengum svo niður hjá Hrafnagili og meðfram þjóðvegi aftur í leikskólann. Ferðin gekk vel og ótrúlega fallegt, kalt en stillt veður. Þegar svona kalt er í veðri og snjór úti eru gúmmístígvél of köld þó börnin séu í ullarsokkum. Sérstaklega þau sem ekki eru fóðruð.
Á fimmtudag kom Arna Ýr úr 7.bekk og las fyrir okkur um hann Elmar. Síðan var stöðvavinna. Á einni stöð var málað á krukkur sem hengdar verða upp í Aldísarlundi einhvern dag í desember. Ætlum að hafa notalega jólastund þar. Á annarri stöð var litað, klippt og límt. Þið fáið ekki að vita hvað við gerðum á þriðju og fjórðu stöð, það er alsherjar leyndarmál J
Á föstudag, í dag, var bókadagur. Lesið var upp úr öllum bókunum, einni opnu úr hverri bók. Sungum og svo teiknuðu allir eina mynd, alveg frjálst val um myndefni. Blautur dagur og allir inni eftir hádegi eftir góða skemmtun úti í pollum, drullusvaði og fleiru J
Eigið góða helgi
Á mánudaginn bættist við hópinn á Eikinni. Alexander Búi byrjaði hjá okkur og við bjóðum hann velkominn. Nú eru börnin orðin tuttugu og tvö börn, 8 strákar og 14 stelpur.
Það sem við gerðum þessa vikuna var nú ýmislegt skemmtilegt. Á mánudaginn æfðum við fínhreyfingar. Allir æfðu fjórar mismunandi fínhreyfingar á 15 mínútna fresti. Einskonar stöðvavinna nema börnin voru á sínu borði í sínum hóp en kassarnir með æfingunum flökkuðu á milli borða. Það var farið eftir leiðbeiningum, sett saman kubba, þræddar perlur og fleira. Gekk mjög vel enda áhugasamir og glaðir krakkar á ferð. Á fimmtudaginn teiknuðum við sjálfsmynd.
Í dag, föstudag, er bangsadagur og komu allir með einn bangsa með sér. Það virðist ekki leiðinlegt að fá að koma með bangsann sinn með sér í leikskólann. Séra Hannes kom til okkar og við sungum saman og hlýddum á skemmtilega frásögn. Börnin sátu dolfallin og virtust hafa mjög gaman af frásögninni og tóku virkan þátt í söngnum.
Myndir fylgja með úr tónlistartíma, útiveru, bangsadegi og samverustund með Séra Hannesi.
|
Viðburðir leikskólans 3. sept.
Grænn dagur
10. sept.
Bókadagur
17. sept.
Hjóladagur
24. sept.
Buff dagur
Viðburðir grunnskólans 6. – 10. sept. 6. bekkur með samverustundir
8. sept. Alþjóðlegur dagur læsis
10. sept. Kennarar annarra skóla í heimsókn, u.þ.b. 30 manns
13. – 17. sept.
5. bekkur með samverustundir
14. sept.
Sameiginleg samverustund í íþróttahúsi kl. 8:15
16. sept.
Samlokusala á miðstigi
17. sept.
Heimsókn kennara Sjálandsskóla
20. – 24. sept.
3. bekkur með samverustundir
20. sept.
Samræmt próf í íslebnsku í 10. b.
21. sept.
Samræmt próf í ensku í 10. b.
22. sept.
Samræmt próf í stærðfræði í 10. b.
23. sept.
Samræmd próf í íslensku í 4. og 7. bekk
24. sept.
Samræmd próf í stærðfræði í 4. og 7. bekk
26. sept.
Evrópskur tungumáladagur
27. – 30 sept.
4. bekkur með samverustundir
1. okt.
Starfsdagur kennara – frí hjá nemendum
|