Þá er þessi vika senn á enda og aðlögunin að verða búin í bili. Við fáum eitt barn inn 1. mars en það er hún Sara Dögg.
5. feb. er bókadagur í leikskólanum og mega þá börnin koma með eina bók að heiman með sér, munið að merkja bækurnar vel. Bent er á að það sem barnið kemur með með sér er á ábyrgð foreldra. Ef bókin gleymist getum við líka farið á bókasafnið okkar og leyft barninu að velja sér eina bók til að hafa yfir daginn.
6. febrúar(laugardagur) er dagur leikskólans. Að því tilefni fáum við að hengja upp myndir eftir börnin út í Vín og eru þær til sýnis fyrir gesti og gangandi.
Mánudaginn 8. febrúar fer Binna bangsinn okkar heim með fyrsta barni. Binna er í tösku og með henni fylgir bók. Foreldrarnir skrifa út frá Binnu það sem gerðist um daginn og flétta jafnvel hugtakið virðing inn í textann en við erum núna að vinna með virðingu. Dæmi um virðingu gæti t.d.
verið að Binna fór upp á hillu meðan við vorum að baka svo ekki færi deig á hana.
Takk fyrir vikuna og góða helgi. Starfsmenn Bjarkarinnar
Ég vil byrja á að óska fólki farsældar á nýju ári því þetta er fyrsti pósturinn á árinu 2010. Nokkrar ástæður eru fyrir því ekki síst forföll og svo aðlögun nýrra barna.
Hjá okkur eru byrjuð fjögur ný börn. Það eru þau: Elfa Rún, Arnór Ágúst, Edda Ósk og Friðrik Bjarnar. Næsta mánudag byrja svo hjá okkur þrjú börn til viðbótar og eru það þau Kári Steinn,Eva og Sara Dögg. Við bjóðum þau og fjölskyldur þeirra velkomin á Björkina á Krummakoti.
Meðan að aðlögun stendur yfir erum við ekki að fara með börnin í hópastarf heldur leggjum áherslu á að allir kynnist og að dagurinn gangi fyrir sig með reglubundnum hætti. Útivera er sem áður fastur liður hjá okkur og fer sá tími eftir veðri og áhuga barnanna því við förum ekki út eftir hádegi svona yfir vetrartímann. Minni foreldra á að merkja öll föt barnanna svo minni hætta verði á ruglingi. Þá vil ég bara þakka fyrir vika og vona að þið megið eiga góða helgi.
Fyrir hönd starfsmanna. Sigurveig Björnsdóttir
Við á Björkinni erum búin að vera dugleg úti þessa viku og látum veðrið ekkert hafa áhrif á okkur með það, við erum bara stutt er veður er slæmt. Eftir góða útiveru ná börnin oft mjög góðum leik og eigum við oft góðar stundir saman. Minni foreldra á að skoða vel fréttabréfið fyrir desember því margir viðburðir eru á dagskrá, á morgun er t.d. föndurdagur í umsjón foreldrafélagsins. Við erum komin vel á veg með glaðninginn til foreldra en eigum enn eftir að vinna eitthvað í honum með frágang og annað. Hópastarf verður því ekki með hefðbundnum hætti fyrr en því er lokið eða bara eftir áramót.
Eins og við var að búast hætta nokkur börn hjá okkur um áramótin og flytjast á Furuna. Foreldrar barnanna sem flytja fá nánari upplýsingar um það fyrir jól. Einnig er er ein stúlka að hætta í leikskólanum 15. desember en það er hún Elísabet Aðalheiður. Við eigum eftir að sakna hennar og fjölkyldu hennar sárt en vonum að þeim gangi allt í haginn á Akureyri.
Foreldrar þeirra barna sem von er á á Björkina eftir áramótin eiga eftir að staðfesta vistunina og læt ég ykkur vita þegar það er frágengið.
Vona að allir eigi góða helgi og takk fyrir vikuna. Kveðja Sigurveig, Adda Bára og Hrönn
Síðasta vika gengið vel og öll börn komin í hús. Þar sem ekki allir starfsmenn eru komnir í hús höfum við verið að föndra lítillega þegar tími er til. Útiveran hefur verið góð þó hún hafi ekki alltaf verið löng, fer það alltaf eftir veðri hverju sinni.
Taupokinn sem foreldrafélagið lagði börnunum til fyrir blaut útiföt og börnin máluðu á, þarf að taka heim og þvo úr honum ef starfsmenn hafa sett föt í hann, eitthvað hefur borið á að pokarnir hafi gleymst.
Í dag er vasaljósadagur og mega þá börnin taka með sér eitt vasaljós, munið að merkja.
Takk fyrir vikuna og góða helgi. Starfsmenn Bjarkarinnar
Til foreldra á Björkinni. Eins og þið hafið eflaust tekið eftir er komin listi á alla kassana sem geyma aukafötin. Gott er að athuga hvort allt er í kassanum, þó nokkuð hefur borið á því að það vantar t.d. sokka og í svona vætutíð blotna börnin oftast þó þau séu í góðum pollagalla. Einnig er nauðsynlegt að hafa alltaf pollagallan með og hlý föt. Veðrið á Íslandi er svo óútreiknanlegt og er fljótt að breytast.
Í hópastarfi núna erum við að vinna að því sem á að gleðja ykkur um jólin, annað sem við gerum reynum við að skrifa á töfluna.
Bókadagur er í dag og mega þá allir koma með eina bók að heiman – muna að merkja! Öll börnin fá svo heim með sér bókamerki að tilefni bókavikunnar og degi íslenskarar tungu.
Takk fyrir vikuna og góða helgi. Kveðja frá Sigurveigu, Öddu Báru og Hrönn
Á Björkinni í síðustu viku var orðin góð mæting, og héldum við að nú væru pestarnar búnar að taka sér frí , en nú í byrjun vikunnar eru víst fleiri lagstir. Við reynum samt að halda okkar striki eins og hægt er og höldum áfram að vinna í því sem pabbi og mamma mega ekki vita hvað er.
Þessa viku verða bækur í fyrirrúmi hjá okkur og svo mega börnin koma með bók að heiman á föstudaginn.
Kveðja frá starfsmönnum Bjarkarinnar
Þessi vika hefur verið tíðindalítil, en allt gengið vel. Vegna veikinda hefur ekki verið hægt að hafa hópastarf þessa viku en börnin leikið sér í staðinn í frjálsum leik. Einnig höfum við verið dugleg að fara út og gott er að muna eftir að hafa föt með eftir veðri.
Rugludagur er í dag og er þá nóg t.d. að koma í einhverju ranghverfu. Ungum börnum finnst þetta sumum óþægilegt þar sem þau eru kannski nýbúin að læra hvernig fötin eiga að snúa og er það þá ekkert mál. Einhverjir hlutir verða svo gerðir „ruglaðir“ þannig að börnin skilji muninn Takk fyrir vikuna og góða helgi. Starfsmenn Bjarkarinnar
Á morgun föstudag er blár dagur. Þá eiga börnin þess kost að mæta í einhverju bláu í leikskólann. Ef börnin eiga ekkert blátt þá geta þau fengið t.d. blá málningu á kinnarnar. Þennan dag beinum við athygli okkar að því sem er blátt í okkar nánasta umhverfi og það getur auðveldað okkur að læra hvað er blátt.
Í næstu viku á þriðjudaginn er alþjóðlegi bangsadagurinn. Þá mega allir koma með bangsa að heiman í leikskólann. Við leikum okkur svo með bangsa, lesum bangsasögur og syngjum bangsalög.
í gær var fyrsti dagurinn sem við notuðum nýju pokana frá foreldrafélaginu sem börnin ykkar máluðu á. Ekki fóru allir með sinn poka heim í dag, en ef það er rigning á morgun þá fara flestir með sinn poka heim. Síðan er ætlast til að þið þvoið pokana og setjið þá aftur í kassana. Þessa dagana er mjög nauðsynlegt að fylla vel á kassana því oft blotna innifötin líka í svona tíð.
Nokkuð hefur borið á veikindum hjá okkur og er þar víst engin undanskilin. Vegna starfsmannaeklu höfum við ekki getað haft hópastarf nema einu sinni í þessari viku en börnin eru mjög dugleg að leika sér í frjálsum leik með okkur.
Þá viljum við þakka fyrir vikuna og vonað að þið eigið góða helgi.
Kveðja Starfsmenn Bjarkarinnar
Í dag var dótadagur hjá okkur og gekk það mjög vel. Þeir sem gleymdu að koma með dót þurfa ekki að örvænta því alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október og mega þá allir koma með bangsa með sér í leikskólann og verður það auglýst áður á hurðinni hjá okkur.
Binna á nú aðeins eftir að fara heim með einu barni og tekur hún sér þá frí það sem eftir er mánaðarins. Hún ætti svo að geta farið einu sinni heim með öllum fyrir jól. Við viljum þakka foreldrum fyrir hversu duglegir þeir eru að skrifa í bókna með henni. Þetta kryddar mjög mikið samverustundirnar hjá okkur og er góð tenging milli heimilis og skóla.
Að lokum langar mig að minna foreldra þeirra barna sem ekki hafa komið með albúm með myndum af fjölskyldunni að það er hægt að fá hjá okkur albúm eða bara senda tölvupóst sigurveig@krummi.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og við getum komið þessu í albúm.
Takk fyrir vikuna og góða helgi. Starfsfólk Bjarkarinnar