Innkaupalistar fyrir skólaárið 2010-2011
|
|||||
|
Innkaupalistar fyrir skólaárið 2010-2011 Hrafnagilsskóli verður settur þriðjudaginn 24. ágúst kl. 10 í íþróttahúsi skólans. Skólastjóri. Matseðill fyrir ágústmánuð
Stjórnandi kórsins er María Gunnarsdóttir tónmenntakennari og Daníel Þorsteinsson píanóleikari lék undir. Kórinn söng mjög fallega og hljómaði söngurinn vel upp í brekkunni og þegar á leið mátti einnig heyra skógarþröst taka undir í nálægu tré. Hér eru nokkrar myndir frá tónleikunum.
Meðal verkefna voru ýmis þrifamál, t.d. var umhverfishreinsun á hendi miðstigs. Þau sópuðu plan og stéttar svo vel að við getum sparað okkur stóra sóparabílinn í vor. Þá fór fram mikil ruslhreinsun á opnum svæðum, úr girðingum og skjólbelturm, í lækjum og skurðum svo að nú finnst varla nokkurt snifsi á foki um svæðið frá Jólagarði að Reyká. Eldstæði í Aldísarlundi var hlaðið upp og þéttur lerkilundur grisjaður og unnið í stígagerð á svæðinu. Sum verkefni voru innan dyra. T.d. prentaði listahópur á léreft og saumaði poka til að nota í stað plastpoka við söfnun á endurvinnsluefni. Einnig voru búin til merkispjöld með áminningum um sparnað í orkunotkun og handþurrkum sem fest verða á viðeigandi staði í skólanum. Fatnaður var endurunninn, bæði búin til ný föt og hálsfestar. Við fengum 2 gesti, þau Sigurð Inga Friðleifsson sem fræddi orkuhópinn um orkunotkun og endurnýjanlega orkugjafa og Söndru Grettisdóttur sem fræddi þau m.a. um hreinsun sundlaugarvatns með ósoni. Þá má ekki gleyma vettvangsferðum; 1. – 4. bekkur fór í Sagaplast og fræddist um flokkun og endurvinnslu og heimsótti einnig Norðurorku og hópur af unglingastigi heimsótti Moltu, jarðgerðarstöðina á Þveráreyrum.
Hér á síðunni eru tenglar þar sem skoða má myndir af nemendum við vinnu sína.
Verði ykkur að góðu Ágætu sveitungar. Eins og flestum er kunnugt greindist Sigurður Andrés Sverrisson nemandi í 7. bekk Hrafnagilsskóla með krabbamein fyrir stuttu. Næstu mánuði þarf hann, ásamt foreldrum sínum, að dvelja í Reykjavík vegna lyfjameðferðar sem fer fram á Barnaspítala Hringsins. Líkt og gefur að skilja hefur orðið svo mikil breyting á högum þeirra að þörf er á samhug og samhjálp okkar allra. Því hefur verið stofnaður reikningur í Landsbankanum sem allir geta lagt inn á. Um leið og við sendum Sigurði Andrési bestu batakveðjur fá foreldrar hans og fjölskylda jafnframt okkar hlýjustu óskir. Skólastjóri. Hér fylgja upplýsingar um reikninginn: Kennitala: 300797-3779 Reikningsnúmer: 162-15-383413 Þriðjudagskvöldið 16. mars mun Magnús Stefánsson fræðslufulltrúi hjá Marita (forvarnarsviði Samhjálpar) halda fyrirlestur fyrir foreldra um skaðsemi fíkniefna og þá erfiðleika sem neysla þeirra getur valdið. Daginn eftir mun Magnús hitta nemendur í 7.-10 bekk í Hrafnagilsskóla ( á skólatíma) og halda samsvarandi fyrirlestur fyrir þá. Til að fylgja fræðslu nemenda eftir er mikilvægt að foreldrarnir fái líka sömu fræðslu, þó nálgun efnisins sé ólík. Þess vegna boðum við til ofangreinds fundar sem haldinn er í samstarfi við foreldra barna í Valsárskóla og á Grenivík. Á foreldrafundinum verður leitast við að hvetja foreldra til ábyrgðar á börnum sínum og að standa saman. „Menning” unglinga verður kynnt fyrir foreldrum svo þeir séu sem best undir það búnir að takast á við unglingsár barnsins. Börn og foreldrar eru hvött til að ræða um þessi mál sín á milli.
|
|||||
|
Hrafnagilsskóli Eyjafjarðarsveit, 601 Akureyri, sími: 4648100 (grunnskóli) og 4648120 (leikskóli), Fax: 4648101, Netfang: hrafnagilsskoli@krummi.is |
|||||