Á mánudaginn var íþróttahús og síðan fengum við að borða í borðstofunni hjá Bryndísi svo var leikið úti eftir hádegi. Á þriðjudaginn var tónlist hjá Maríu og löng útivera í góða veðrinu. Á miðvikudaginn héldum við áfram með páskaföndrið og síðan var leikið úti í bleytunni og rigningunni. Á fimmtudaginn föndruðum við svo páskaegg sem hanga í loftinu inni á deild endilega kíkkið á þau. Föstudagurinn heilsaði svo með mikilli tónlist því það var hljóðfæradagur og sameiginleg söngstund síðan fórum við í gönguferð og klipptum greinar og settum í vatn , börnin fara svo heim með greinina sína á föstudaginn:}
Takk fyrir góða viku Inga og Natalía.
Á mánudaginn var íþróttahús og útivera fyrir og eftir hádegi. Á þriðjudaginn tónlist hjá Maríu, á miðvikudaginn gerðum við sólblóm sem eru á veggnum inni á deild endilega skoðið. Á fimmtudaginn gerðum við dúska sem við notum í páskaföndrinu okkar og á föstudaginn var geisladiskadagur og mikið fjör að hlusta á alla þessa tónlist sem börnin komu með síðan héldum við uppá afmælin Enoks Atla og Trausta Hrafns .
Kveðja Inga og Natalía.
P.S. Við hvílum tímana í íþróttahúsinu á meðan dansinn er.
Á mánudaginn fórum við í íþróttahúsið og skemmtum okkur vel síðan var útivera í kuldanum eftir hádegi. Á þriðjudaginn var tónlist hjá Maríu og útivera í góðu veðri fyrir og eftir hádegi. Í hópastarfi á miðvikudaginn bjuggum við til blómapotta úr súrmjólkurfernum og á fimmtudaginn gróðursettum við gulrótarfræ í pottana. Spennandi verður svo að fylgjast með þegar fræin fara að spíra. Endilega komið inn á deild og skoðið í pottana. Á föstudaginn var svo vasaljósadagur og útivera í vorveðrinu og pollunum.
Takk fyrir góða viku.
Kveðja Inga og Natalía.
P.S. Minni á aukafatnað ,pollaföt,stígvél og kuldaföt
Á mánudaginn var íþróttahús, á þriðjudaginn var tónlist hjá Maríu á miðvikudaginn gerðum við bolluvendi á fimmtudaginn komu krakkar ú Hrafnagilsskóla að lesa fyrir okkur og vorum við dugleg að hlusta.
Á föstudaginn var svo málningardagur. Það sem af er þessari viku 15-19.feb. hefur allt gengið vel og mikið brallað, á mánudag var að sjálfsögðu Bolludagur og mikið bolluát, á þriðjudag var Sprengidagur og tónlist hjá Maríu og sprengdu sig allir út af saltkjöti og baunum síðan var leikið úti í bleytunni. Á miðvikudaginn var Öskudagur og komu allir í búningum bæði starfsfólk og börn og skemmtum við okkur fram eftir degi , Í dag er fimmtudagur og frjáls leikur úti og inni og á morgun er frí vegna starfsdags starfsfólks. Takk fyrir vikuna og góða helgi.
Inga og Natalía
Á mánudaginn fórum við loksins í íþróttahús og voru allir sælir og glaðir með það. Á þriðjudaginn var tónlist hjá Maríu,
Á miðvikudaginn gerðum við bangsaklukkur sem við lituðum og klipptum svo út ,á fimmtudaginn teiknuðum við myndir og á föstudaginn var svo bókadagur takk fyrir frábæra viku.
Kveðja Inga og Natalía.
p.s. Þið getið séð afrakstur hópastarfstímana inni á deild.
Þessi vika gekk vel enda ekki slæmt að fá vorveður í janúar. Á mánudaginn fórum við í ævintýragönguferð í staðin fyrir íþróttahús, á þriðjudaginn var tónlist hjá Maríu, á miðvikudaginn og fimmtudaginn var mikið brallað t.d. mikil útivera í veðurblíðunni og á föstudaginn var pabbakaffi og þökkum við öllum fyrir komuna. Semsagt athafnasöm vika í alla staði.
Kveðja Inga og Natalía á Öspinni.
Þessi vika gekk vel enda ekki slæmt að fá vorveður í janúar. Á mánudaginn fórum við í ævintýragönguferð í staðin fyrir íþróttahús, á þriðjudaginn var tónlist hjá Maríu, á miðvikudaginn og fimmtudaginn var mikið brallað t.d. mikil útivera í veðurblíðunni og á föstudaginn var pabbakaffi og þökkum við öllum fyrir komuna. Semsagt athafnasöm vika í alla staði.
Kveðja Inga og Natalía á Öspinni.