Þá erum við flest mætt aftur að loknu sumarfríi, vonum að allir hafi átt frábært sumarfrí. Ný börn eru að byrja hjá okkur í ágúst og bjóðum við þau og foreldra þeirra hjartanlega velkomin í Krummakot.
Uppákomudagar í ágúst.
Föstudaginn 13. Hjóladagur, börnin mega koma með hjól eða sparkbíl í leikskólann og muna eftir hjálminum.
20. ágúst verður derhúfudagur.
27. ágúst verður útidótadagur.
Sumarlokun leikskólans verður frá 5. júlí – 4. ágúst.
Við á Eikinni byrjuðum þessa viku skemmtilegum danstímameð Elínu, við tókum marga skemmtilega dansa og getum ekki beðið eftir að sýna öðrum. Svo fórum við í hið vikulega skólasmstarf sem var gaman en á þriðjudaginn mótuðum við eldfjöll úr trölladegi í tilefni eldgosanna á Íslandi. Seinna ætlum við svo að mála eldfjöllin og búa til smá gos.
Í dag fórum við í fyrsta göngutúrinn síðan um áramót, við gengum áleiðis upp á fjall, stoppuðum einhverstaðar og fengum okkur nesti. Við gengum svo til baka, fórum smá krókaleiðir og ævintýraferðir sem enduðu í Aldísarlundi. Þar fundum við lítinn leikvöll þar sem við lékum okkur áður en við fórum heim.
Veður hefur svo sem verið ágætt þó að það mynni okkur ekkert á að sumardagurinn fyrsti er að ganga í garð. Við viljum líka biðja fóreldra að taka eitthvað af skítugum fötum hjá krökkunum og þvo þau.
Takk fyrir vikuna og eigiði góðan sumardag hinn fyrsta
Þá er þessi fyrsta vika eftir páskafrí liðin. Við á leikskóladeild höfum nýtt góða veðrið í útiveru. Í dag föstudag er búningadagur hjá okkur og hér voru mættar í morgun allavega furðuverur og hetjur sem hafa skemmt sér vel í dag bæði úti og inni. Í morgun hittumst við öll á Furunni og sungum saman nokkur lög og svo fóru allir út að leika sér.
Næsta fösudag 16 apríl er ömmu og afa kaffi hjá okkur, en þá mega börnin bjóða ömmu og afa í kaffi milli kl 14 og 15:45. Ef amma og/eða afi komast ekki þá mega þau að sjálfsögðu bjóða einhverjum öðrum í staðinn, frænku,frænda eða bara mömmu eða pabba.
Kveðja frá leikskóladeild
Nýr starfsmaður til starfa á leikskóladeild 29. mars. Hún heitir Hildur Ýr Sigþórsdóttir og verður aðallega í afleysingum.
Við bjóðum Hildi Ýr hjartanlega velkomna til starfa
Þann 6. apríl er starfsdagur hjá okkur á leikskóladeild frá kl. 8:00 – 12:00. Leikskóladeildin opnar kl. 12:00.
Þorvaldur Þ.
Það var rosalega mikið um skemmtilega hluti í þessari viku, krakkarnir byrjuðu vikuna á nýju skólasamstarfi, til dæmis krakkarnir í rauða hópnum sem fengu heimsókn frá grunnskólanum gerðu litla teiknimynd með myndvarpa og glærum.
Fyrsti danstíminn var í þessari viku og fóru allir til Elínar og skemmtu sér konunglega. Þau lærðu nokkra dansa og ætla að halda áfram að æfa sig komandi vikur. Á miðvikudaginn var óvæntur glaðningur í kaffinu, þar sem allir á leikskólanum fengu ljúffenga skúffuköku.
Undanfarna daga höfum við verið að vinna með páskana í hópastarfinu, við höfum litað, klippt og límt páskaegg og páskaunga og síðast en ekki síst höfum við ferið að „putta prjóna“ páska unga, þeir eru núna tilbúnnir upp á deild svo endilega komið og skoðið þá.
Enn og aftur vil ég minna foreldra á að koma með regnföt handa krökkunum þó það sé ekki rigning, allt er rennandi blautt úti og pollar og drulla út um allt.
Takk fyrir vikuna
Á mánudaginn var íþróttahús og síðan fengum við að borða í borðstofunni hjá Bryndísi svo var leikið úti eftir hádegi. Á þriðjudaginn var tónlist hjá Maríu og löng útivera í góða veðrinu. Á miðvikudaginn héldum við áfram með páskaföndrið og síðan var leikið úti í bleytunni og rigningunni. Á fimmtudaginn föndruðum við svo páskaegg sem hanga í loftinu inni á deild endilega kíkkið á þau. Föstudagurinn heilsaði svo með mikilli tónlist því það var hljóðfæradagur og sameiginleg söngstund síðan fórum við í gönguferð og klipptum greinar og settum í vatn , börnin fara svo heim með greinina sína á föstudaginn:}
Takk fyrir góða viku Inga og Natalía.
Síðustu dagar hafa verið mjög fínir, við höfum leikið okkur mikið úti enda hefur veðrið skánað til muna fyrir utan síðustu tvo. Þá hefur verið rigning og slydda og mætti minna foreldra á að koma með pollaföt handa krökkunum, því að sumir urðu ansi blautir.
Skólasamstarfið hefur gengið vel og núna á mánudaginn var fjórða skiptið sem það hefur verið eftir áramót. Nú förum við að skipta yfir í önnur skemmtileg verkefni sem krakkarnir inna með fyrstu bekkingum.
Einnig hefur verið gaman í hópastarfinu, þar sem að við höfum verið að vinna með litli, þ.e.a.s. blöndun lita og svo bara lita fallegar myndir. Síðasta mánudag var krökkunum á Eikinni boðið á dassýningu grunnsólanns, þar sem nokkrir bekkir sýndu dans í íþróttahöllinni, þetta var rosalega flott sýning og allir skemmtu sér vel.
Takk fyrir vikurnar
Á mánudaginn var íþróttahús og útivera fyrir og eftir hádegi. Á þriðjudaginn tónlist hjá Maríu, á miðvikudaginn gerðum við sólblóm sem eru á veggnum inni á deild endilega skoðið. Á fimmtudaginn gerðum við dúska sem við notum í páskaföndrinu okkar og á föstudaginn var geisladiskadagur og mikið fjör að hlusta á alla þessa tónlist sem börnin komu með síðan héldum við uppá afmælin Enoks Atla og Trausta Hrafns .
Kveðja Inga og Natalía.
P.S. Við hvílum tímana í íþróttahúsinu á meðan dansinn er.