Bókasafnið er samsteypusafn, það er, bæði skólabókasafn og almenningssafn. Þjónusta þess er opin öllum íbúum sveitarfélagsins þeim að kostnaðarlausu.
Safnið er staðsett í kjallara íþróttahússins við Hrafnagilsskóla. Hægt er að ganga um dyr að austan (keyrt niður með íþróttahúsinu að norðan) eða um sundlaugarinngang og þaðan niður á neðri hæð.
Á safninu er mikið úrval bóka og tímarita bæði til afþreyingar og upplýsingaöflunar.
Opnunartímar safnsins eru:
Mánudaga til föstudaga frá kl. 9:00-12:30
Einnig er opið á mánudögum frá kl. 13:00-16:00


