Ábyrgð á fjármunum og persónulegum eigum
Nemendur bera sjálfir ábyrgð á fjármunum og persónulegum eigum sínum í skólanum. Þurfi nemendur að hafa peninga með sér í skólann eru þeir hvattir til að biðja kennara, skólaliða eða ritara að geyma þá fyrir sig og aldrei að skilja verðmæti eftir í yfirhöfnum.
Farsímanotkun
Notkun farsíma á skólatíma er óheimil. Nemendur mega þó hafa farsíma meðferðis og geyma í töskum sínum ef þeir þurfa á þeim að halda eftir að skóla lýkur. Við óheimila notkun farsíma er hann gerður upptækur og komið til skólastjórnenda. Þangað geta nemendur sótt símann ílok skólasdags. Við endurtekin brot afhendist síminn einungis foreldrum.
Fatnaður og óskilamunir
Áríðandi er að merkja vel skólatöskur, skó, föt, íþróttafatnað og handklæði. Á foreldradögum eru óskilamunir til sýnis og eru foreldrar sérstaklega hvattir til að huga að munum barna sinna. Skólaliðar varðveita óskilamuni og er öllum bent á að leita til þeirra.
Forföll kennara
Reynt er að útvega kennara í forföllum. Ekki er hægt að reikna með að það takist í öllum tilvikum, enda er fyrirvari oft skammur. Ef fella þarf niður kennslu hjá yngri nemendum er gengið úr skugga um hvort einhver sé heima áður en þeir eru sendir heim úr skóla.
Forföll nemenda
Veikindi og forföll skal tilkynna að morgni á skrifstofu skólans. Jafnframt eru foreldrar beðnir um að láta skólabílstjóra vita. Nemendum er veitt leyfi til að sinna nauðsynlegum erindum. Mælst er til að leyfisbeiðnum sé haldið í lágmarki, jafnframt eru foreldrar / forráðamenn beðnir um að fara fram á þær með góðum fyrirvara sé þess nokkur kostur. Foreldrar eru beðnir um að sækja um leyfi hjá skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra ef óskað er eftir leyfi meira en tvo daga, annars nægir að fá leyfi hjá umsjónarkennara.
Í 8. grein grunnskólalaga er kveðið á um slík leyfi:
,,Sæki forráðamaður skólaskylds barns um tímabundna undanþágu þess frá skólasókn er skólastjóra heimilt að veita slíka undanþágu í samráði við umsjónarkennara telji hann til þess gildar ástæður. Forráðamaður skal þá sjá til þess að nemandinn vinni upp það sem hann kann að missa úr námi meðan á undanþágu stendur.“
Heimsóknir
Þegar nemendur fara í heimsóknir hver til annars eftir skóla, þurfa þeir að vera búnir að fá leyfi foreldra áður en þeir koma í skóla og kanna hjá bílstjóra hvort pláss er í skólabíl.
Nesti
Mikilvægt er að nemendur neyti góðs morgunverðar áður en þeir fara í skólann á morgnana til að þeir haldi starfsþreki.
Flestum er þar að auki nauðsynlegt að fá hressingu í skólanum og er þá annað hvort hægt að hafa með sér nesti eða láta duga að fá sér mjólkurglas í skólanum sem öllum stendur til boða. Mikilvægt er að nestið sé hollt, t.d. smurt brauð, ávöxtur eða grænmeti. Sætabrauð, sætt kex og sætir drykkir eru ekki leyfðir. Þó geta kennarar gert undantekningu á því við sérstök tilefni. Gosdrykkir eða orkudrykkir eru aldrei leyfðir í skólanesti.
Opnun skóla
Skólaliðar sem annast gæslu á nemendum utan kennslustunda mæta til vinnu kl. 8:00 að morgni og þá er skólinn jafnframt opinn nemendum.
Óveður eða ófærð
Þurfi að fella niður skólahald vegna veðurs eða ófærðar er það auglýst í Ríkisútvarpi svo fljótt sem verða má og upplýsingar lesnar inn á símsvara skólans (878-1603).
Veður og færð í Eyjafjarðarsveit getur verið mjög mismunandi þannig að einungis í hluta sveitarinnar sé ekki ferðaveður. Það er foreldra að meta hvort þeir sendi börn sín í skóla og tilkynna til skólans ef þeir telja nauðsynlegt að halda börnunum heima.
Þurfi að senda nemendur fyrr heim vegna veðurs er gengið úr skugga um að foreldrar yngri barnanna fái vitneskju um það.
Símtöl
Peningasími er í anddyri íþróttahúss og er nemendum vísað á að nota þann síma. Í hann er hægt að nota 10-krónupeninga. Ef foreldrar þurfa að koma boðum til barna sinna er reynt að verða við því en ekki er hægt að sækja nemendur í tíma nema brýna nauðsyn beri til.
Skólabækur
Nemendur fá flestar skólabækur að láni og eiga að skila þeim að notkun lokinni. Fara verður vel með bækurnar, því þær þarf að nota aftur. Best er að setja hlífðarkápu úr glæru plasti utan um þær. Glati nemandi bók eða skemmi þarf hann að greiða fyrir hana.
Skólahúsnæði
Hver bekkur hefur sína heimastofu, 8. – 10. bekkur í kjallara íþróttahúss, 1. – 4. bekkur í suðurálmu og 5. – 7. bekkur í miðju hússins. Í kjallara íþróttahúss eru einnig tölvustofa, hand- og myndmenntastofa, bókasafn og félagsmiðstöð unglinga. Að auki er kennt í íþróttahúsi og sundlaug, tónmennt er kennd á jarðhæð í vesturálmu heimavistarhúss, smíðar eru kenndar í kjallara norðurálmu heimavistarhúss og heimilisfræði er kennd á Syðra-Laugalandi.
Skólaleikvöllur
Leiksvæði nemenda eru kringum skólahúsið. Þar eru ýmis leiktæki og boltavellir. Nemendum er óheimilt að fara út fyrir skólalóðina á skólatíma nema með leyfi eða í umsjón kennara.
Skrifstofa
Skrifstofa skólans er opin frá 8 – 16:30 mánudaga til fimmtudaga en frá 8 – 15:30 á föstudögum. Gengið er inn um aðalinngang skólahúss.
Útivist og klæðnaður
Nemendur í 1. – 7. bekk skulu fara út í löngu frímínútunum daglega en nemendur í 8. – 10. bekk a.m.k. einu sinni í viku. Einnig fer kennsla stundum fram utan dyra, ýmist á skólalóð eða í næsta nágrenni. Brýnt er að nemendur klæði sig eftir veðri hverju sinni þannig að þeir geti notið útivistarinnar í leik og námi.



