Almennar upplýsingar

Sarpur

Sjálfsmat Hrafnagilsskóla

Við framkvæmd sjálfsmats Hrafnagilsskóla er stuðst við matskerfið Gæðagreinar sem hefur verið þýtt og lagað að íslenskum aðstæðum af Skólaskrifstofu Skagfirðinga. Matskerfið rekur uppruna sinn til Skotlands og nefnist þar „How Good is Our School?“ Það felur í sér 7 helstu þætti skólastarfs og eru allir þættirnir metnir amk. einu sinni á þriggja ára tímabili. Þættirnir eru þessir:

001NSK      Námskrá

002ÁRA      Árangur

003NOK     Nám og kennsla

004STU      Stuðningur við nemendur

005STA      Starfsandi

006NÝT      Nýting mannafla, fjármagns og aðstöðu

007STJ       Stjórnun, forysta og trygging gæða.

Með matinu reynum við að svara þremur megin spurningum:

1.     Hvernig stöndum við okkur?

2.     Hvernig vitum við það?

3.     Hvað gerum við næst?

Stuðst hefur verið við Gæðagreina frá árinu 2001 og hefur mati á einstökum þáttum verið skipt með eftirfarandi hætti:

Ár Matsþættir
2001-2002 Nám og kennsla – Nýting mannafla, fjármagns og aðstöðu
2002-2003 Námskrá – Stjórnun, forysta og trygging gæða
2003-2004 Árangur – Stuðningur við nemendur – Starfsandi
2004-2005 Nám og kennsla – Nýting mannafla, fjármagns og aðstöðu
2005-2006 Námskrá – Stjórnun, forysta og trygging gæða
2006-2007 Árangur – Stuðningur við nemendur – Starfsandi

Ef þú veist ekki hvert þú ætlar þá skiptir ekki máli hvert þú ferð.

Lewis Carol

Spáðu ekki um framtíðina; skipuleggðu hana.


lokaskýrsla um skólaþróunarverkefnið Lesið í skóginn – með skólum

Eftirfarandi er lokaskýrsla um skólaþróunarverkefnið Lesið í skóginn – með skólum sem unnið var í sjö skólum vítt og breytt um landið 2003 – 2006, þar á meðal í Hrafnagilsskóla. Samstarfsaðilar skólanna voru Skógrækt ríkisins, Kennaraháskóli Íslands, Kennarasamband Íslands og Námsgagnastofnun. pdf lis-matsskyrsla 5.12 Mb


Mat nemenda og starfsfólks á samverustundum í Hrafnagilsskóla

Starfsfólk og nemendur Hrafnagilsskóla svöruðu í apríl 2008 könnun um samverustundir skólans. Niðurstöður könnunarinnar eru hluti af gögnum sem safnað er til sjálfsmats skólans.

Nemendur 4 – 7. bekkjar svöruðu spurningum með bundnum valmöguleikum en nemendur í 8. – 10. bekk voru líka beðnir að svara opnum spurningum með eigin orðum. Könnunin sem lögð var fyrir starfsfólks var einnig blanda af spurningum með bundnum valmöguleikum og opnum spurningum. Í stuttu máli er óhætt að segja að mat bæði nemenda og starfsfólks sé mjög jákvætt. Þeir sem vilja skoða niðurstöður í heild sinni geta farið inn á meðfylgjandi slóð.