Almennar upplýsingar

Sarpur

Mötuneyti

Rekið er mötuneyti við Hrafnagilsskóla og fá nemendur í 5.-10. bekk hádegisverð alla virka daga en nemendur í 1.-4. bekk fjóra daga í viku en á miðvikudögum lýkur skóla kl. 12:05 hjá yngstu börnunum.
Valdemar Valdemarsson, matreiðslumaður, sér um rekstur mötuneytisins en útreikningar og innheimta er í höndum ritara skólans og starfsmanna á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar. Mötuneytisgjöldum er skipt í fjóra jafna hluta og eru sendir út greiðsluseðlar með gjalddögum 1. sept, 1. nóv., 1. febr. og 1. apríl.

Veittur er systkinaafsláttur. Greitt er fullt gjald fyrir tvö elstu börnin og hálft gjald fyrir þriðja barn. Séu systkinin fleiri, er ekki greitt fyrir þau. Afslátturinn gildir fyrir mötuneytisgjöld í grunn- og leikskóla.
Haustið 2009 hækkuðu verð um 11,4% (neysluvísitöluhækkun ágúst 2008 til ágúst 2009) og skólaárið 2009-2010 eru þau sem hér segir:

1. – 7. bekkur   kr. 290
8. – 10. bekkur kr. 360
Reynsla undanfarinna ára sýnir að nánast allir nemendur borða í mötuneytinu. Þess vegna biðjum við þá sem ekki ætla að hafa börn sín í mötuneytinu að tilkynna það til Nönnu ritara í síma 464-8100 fyrir 26. ágúst.
Lögð er áhersla á að í mötuneytinu njóti nemendur fjölbreyttrar fæðu í hæfilegu magni, að matvælin séu rík af næringarefnum og fersk og að þau séu í háum gæðaflokki. Alla daga er eftirmatur, ýmist spónmatur eða ávextir. Matseðlar eru gerðir fyrir mánuð í senn og birtast á heimasíðu skólans.

Útreikningar á mötuneyti skólaárið 2009-2010

Verð
Verð
Bekkur
Fj. daga
pr. máltíð
Heildarverð
pr. gjaldd.
1.b
136
290
39.440
9.860
2.b
136
290
39.440
9.860
3.b
136
290
39.440
9.860
4.b
136
290
39.440
9.860
5.b
172
290
49.880
12.470
6.b
172
290
49.880
12.470
7.b
167
290
48.430
12.108
8.b
172
360
61.920
15.480
9.b
172
360
61.920
15.480
10.b
168
360
60.480
15.120