|
|||||
VistunSkólavistun er starfrækt í Hrafnagilsskóla. Þar gefst foreldrum kostur á að hafa nemendur í 1. – 4. bekk í vistun frá skólalokum til kl. 16:15. Það skal tekið fram að í skólavistun gilda þær reglur að sækja þarf börnin á áður ákveðnum tíma, fólk hefur ekki 15 mínútur í viðbót eins og sums staðar tíðkast. Skólavistunin er lokuð á starfsdögum og í páska- og jólaleyfum.
Skóla á yngsta stigi lýkur:
kl. 14:00 á mánudögum
kl. 14:00 á þriðjudögum
kl. 12:05 á miðvikudögum
kl. 13:10 á fimmtudögum
kl. 13:10 á föstudögum
Heildartímafjöldi á viku í fullri vistun er 14,75 klst. Gjald fyrir fulla vistun er kr. 8.968. Greitt er fyrir þann tíma sem barnið er en þó aldrei lægri upphæð en 3.923 kr. Á miðvikudögum fá vistunarbörnin mat í mötuneytinu strax eftir skóla og kostar máltíðin 290 kr. Síðdegishressing er framreidd kl. 15:00 alla daga og kostar 90 kr.
Starfsmenn skólavistunar eru; Sigríður Birna Bjarnadóttir, umsjónarmaður, Guðrún Charlotta Þorgilsdóttir og Guðný Helga Guðmundsdóttir.
Tilkynna verður til ritara tilfallandi breytingar á vistunartíma t.d. ef börnin eiga að koma heim eða eru að fara í heimsókn til annarra barna.
Eigi að breyta þeim tíma sem barnið er í skólavistun þarf að tilkynna það til Nönnu skólaritara fyrir 25. næsta mánuð á undan í síma 464-8100 eða á nanna@krummi.is . Sé ekki haft samband er litið svo á að um óbreyttan tíma verði að ræða.
Greiðsluseðlar eru sendir út mánaðarlega.
Í skólavistun eru nemendur oftast í frjálsum leik úti og inni allt eftir aðstæðum hverju sinni. Af og til er starfið brotið upp með stöðvavinnu þar sem börnunum gefst kostur á að velja sér ákveðna stöð þar sem þau vinna að verkefnum, allt eftir áhuga hvers og eins. Í skólavistun gilda skólareglur Hrafnagilsskóla sem og aðrar almennar samskiptareglur og leitast er við að skapa jákvætt og notalegt andrúmsloft þar sem börnunum líður vel.
|
|||||
|
Hrafnagilsskóli Eyjafjarðarsveit, 601 Akureyri, sími: 4648100 (grunnskóli) og 4648120 (leikskóli), Fax: 4648101, Netfang: hrafnagilsskoli@krummi.is |
|||||