Almennar upplýsingar

Sarpur

Fulltrúaráðsfundur

Fulltrúaráðsfundur í Hrafnagilsskóla verður haldinn
mánudagskvöldið 12. október kl. 20:30
Fulltrúaráðsfundur er fundur þar sem stjórn Foreldrafélags Hrafnagilsskóla og allir bekkjarfulltrúar skólans hittast og ræða málin.
Dagskrá fundarins:
•    Kynning á stjórn Foreldrafélagsins, hlutverki þess og kynning starfsáætlunar
•    Kynning á Skólaráði og hlutverki þess
•    Kynning á hlutverki bekkjafulltrúa
•    Önnur mál
Eftir þennan fund munu bekkjarfulltrúar yngsta stigs og miðstigs skipuleggja

Lesa frétt…

Skýrsla stjórnar Foreldrafélags Hrafnagilsskóla, skólaárið 2008-2009

Stjórn Foreldrafélags Hrafnagilsskóla skólaárið 2008-2009 var skipuð Hörpu Gunnlaugsdóttur, formanni, Brynhildi Bjarnadóttur, ritara, Hrafnhildi Vigfúsdóttur gjaldkera og þeim Kolbrúnu Elfarsdóttur og Elvýju G Hreinsdóttur sem starfað hafa sem meðstórnendur á þessu skólaári eftir lagabreytingu á síðasta aðalfundi þar sem hlutverki tveggja varamanna í stjórn var breytt í meðstjórnendur. Þessi breyting hefur reynst mjög vel í

Lesa frétt…

Góður aðalfundur Foreldrafélagsins

Aðalfundur Foreldrafélags Hrafnagilsskóla var haldinn síðastliðið þriðjudagskvöld, þann 29. september. Mæting var mjög góð en um 35 manns mættu á fundinn. Fundurinn hófst á skýrslu stjórnar frá síðasta skólaári og að henni lokinni voru lagðir fram ársreikningar. Síðan var gengið til kosninga og stjórn foreldrafélagsins skólaárið 2009-2010 verður skipuð þeim: Brynhildi Bjarnadóttur formanni, Hrafnhildi Vigfúsdóttur

Lesa frétt…

Aðalfundur Foreldrafélags Hrafnagilsskóla

Aðalfundur Foreldrafélags Hrafnagilsskóla fyrir skólaárið 2009-2010 verður haldinn þriðjudagskvöldið 29. september næstkomandi kl. 20.30 í Hrafnagilsskóla. Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum mun Alice Harpa Björgvinsdóttir sálfræðingur flytja fyrirlesturinn: Gaman saman – mikilvægi jákvæðs hugarfars.
Við minnum á að foreldrar/forráðamenn allra barna í Hrafnagilsskóla eru sjálfkrafa félagar í Foreldrafélaginu og eiga því fullt erindi á þennan fund!! Í

Lesa frétt…

Stjórnarfundur hjá Foreldrafélagi Hrafnagilsskóla - 4. feb. 2009

Mættar: Harpa, Hrafnhildur, Brynhildur, Kolbrún og Elvý.

Ákveðið að senda ítrekun vegna innheimtu félagsgjalda. Rukkunaraðferðin gekk nokkuð vel og innheimta var ágæt.

Rætt um væntanlegt fræðsluerindi – ákveðið að hafa augu og eyru opin og grípa eitthvað sem okkur dettur í hug.

Ákveðið að foreldrafélagið taki ekki þátt í vorhátíð þetta árið. Rætt um hvort það væri sniðug

Lesa frétt…

Stjórnarfundur hjá Foreldrafélagi Hrafnagilsskóla - 6. nóv 2008

Mættar: Harpa, Hrafnhildur, Brynhildur, Kolbrún og Elvý.

Fjallað um innheimtu á félagsgjöldum. Brynhildur og Harpa sjá um að semja póst og koma honum til Nönnu, sem sér svo um að senda hann inn á hvert heimili sem á barn í skólanum. Ákveðið að hækka ekki félagsgjöldin heldur hafa þau áfram 1000 kr á heimili.

Rætt um auglýsingar

Lesa frétt…

Fulltrúaráðsfundur í Hrafnagilsskóla – 16. okt 2008

15 manns mættu á fundinn. Engir bekkjarfulltrúar frá 5. bekk mættu en stjórnarmeðlimir sjá um að koma upplýsingum til þeirra.

Harpa formaður hóf fundinn, kynnti sig, og aðrir voru látnir kynna sig. Hún fór síðan stuttlega yfir hlutverk og starfsáætlun FFH. Þar næst kynnti hún skólaráð sem tekur við af foreldra- kennara- og nemendaráði. Hún sagði

Lesa frétt…

Stjórnarfundur hjá Foreldrafélagi Hrafnagilsskóla – 2. okt 2008

Mættar: Harpa, Hrafnhildur, Brynhildur, Kolbrún og Elvý.
Stjórninn hóf fundinn á því að skipta með sér verkum og verður hlutverkaskipan skólaárið 2008-2009 samkvæmt eftirfarandi lista:

Harpa Gunnlaugsdóttir formaður
Hrafnhildur Vigfúsdóttir gjaldkeri
Brynhildur Bjarnadóttir ritari
Kolbrún Elfarsdóttir meðstjórnandi
Elvý Hreinsdóttir meðstjórnandi

Meðlimir úr fyrri stjórn kynntu stuttlega starfsemi foreldrafélagsins fyrir nýjum stjórnarnmeðlimum.

Ákveðið að halda fulltrúarráðsfund 16. okt. Þar skal rætt um jólaföndur og

Lesa frétt…

Aðalfundur Foreldrafélags Hrafnagilsskóla – 16. sept 2008

Samtals mættu 16 manns.

Hans Rúnar skipaður fundarstjóri

Formaður, Harpa Gunnlaugsdóttir las upp skýrslu stjórnar frá liðnu ári

Ársreikningar lagðir fram og samþykktir af öllum viðstöddum

Brynhildur ritari kynnti tillögu stjórnar um að gera breytingu á verkaskiptingu innan stjórnar. Tillagan fólst í því að breyta 2 varamönnum í meðstjórnendur. Sú tillaga var samþykkt einróma.

Kosning í stjórn: Kolbrún Elfarsdóttir kjörin

Lesa frétt…

Aðalfundur Foreldrafélags Hrafnagilsskóla - 16. sept 2008

Samtals mættu 16 manns.

Hans Rúnar skipaður fundarstjóri

Formaður, Harpa Gunnlaugsdóttir las upp skýrslu stjórnar frá liðnu ári

Ársreikningar lagðir fram og samþykktir af öllum viðstöddum

Brynhildur ritari kynnti tillögu stjórnar um að gera breytingu á verkaskiptingu innan stjórnar. Tillagan fólst í því að breyta 2 varamönnum í meðstjórnendur. Sú tillaga var samþykkt einróma.

Kosning í stjórn: Kolbrún Elfarsdóttir kjörin

Lesa frétt…